Umhirða Kockums carbonstálpanna

Kockums carbonstálpönnur eru afhentar tilbúnar til notkunar og hafa verið innbrenndar með jurtaolíu hjá framleiðanda.

Athugið – yfirborðið breytist við notkun

Svarta yfirborðið á nýrri pönnu er innbrennt olíulag en ekki hefðbundin non-stick húðun.

Við notkun mun upprunalega innbrennda lagið breytast og slitna ójafnt og ný náttúruleg patína byggjast upp í staðinn. Pannan getur því orðið flekkótt, brúnleit eða ójöfn á litinn. Þetta er eðlilegur eiginleiki carbonstáls og þýðir ekki að húðun sé að flagna af eða að pannan sé ónýt.

Rétt meðhöndluð carbonstálpanna verður betri eftir því sem hún er meira notuð.

Við notkun

• Hitið pönnuna hægt og rólega. Byrjið á lágum hita og hækkið hitann smám saman.
• Notið smjör eða olíu við steikingu, sérstaklega fyrst meðan ný patína er að byggjast upp.
• Forðist að hita tóma pönnu mjög hratt, sérstaklega á spanhellu.
• Súrar matvörur eins og tómatar, sítróna, edik og vín geta leyst upp hluta innbrennda lagsins. Það skemmir ekki pönnuna en þá getur þurft að byggja yfirborðið upp aftur.

Þrif

• Látið pönnuna kólna aðeins áður en hún er þrifin.
• Þvoið með heitu vatni án uppþvottaefnis.
• Setjið aldrei í uppþvottavél.
• Látið pönnuna aldrei liggja í bleyti.
• Þurrkið hana strax og vandlega, einnig að utan og undir botninum.
• Berið örþunnt lag af olíu á steikingarflötinn eftir þrif.

Ef yfirborðið hefur farið af

Það þýðir yfirleitt ekki að pannan sé skemmd. Carbonstál má endurinnbrenna.

Hitið hreina og þurra pönnuna hægt þar til hún byrjar lítillega að reykja. Berið mjög þunnt lag af hlutlausri matarolíu á steikingarflötinn og látið olíuna brenna inn. Endurtakið eftir þörfum þar til dökkt innbrennt yfirborð hefur myndast.

Með áframhaldandi notkun, olíu og réttri umhirðu byggist náttúrulegt yfirborð pönnunnar síðan áfram upp.

Tilbúið til notkunar á innan við mínútu.

nomadiQ BBQ tengist gasi og er tilbúið til nokunar á innan við mínútu. Snúðu fótunum út, aflæstu tökkunum, opnaðu og tengdu T tengið.

nomadiQ ferðagrillið

NomadiQ er snjallt, stílhreint og hægt að
nota það hvar sem er, á svölunum, í garðinum, bátnum, eða á ferðalögum. Það er
létt, auðvelt að flytja og fyrirferðarlítið. Þökk sé sniðugu fellikerfi er það
samt nógu stórt til að grilla fyrir að minnsta kosti 12 manns.

 

NomadiQ vinnur á gasi og er tilbúið til
notkunar á innan við mínútnu, grillið er með tvö aðskilin hitasvæði sem henta
fyrir kjöt, fisk og grænmetisrétti. NomadiQ er úr hágæða áli sem gerir grillið
ekki bara mjög stöðugt heldur kólnar það líka mjög hratt eftir notkun.

 

Þar að auki er auðvelt að þrífa það og
grillplöturnar þola uppþvottavélar. Þegar það er samanbrotið getur það farið
aftur inn í bílinn, hjólhýsið, bátinn eða skápinn.

Létt ferðagrill fyrir útilegur frá Grilldrottningunni

Hvernig þrífur þú grillið

Mjög einfalt að þrífa eftir notkun