Hnífasett 8 stk ryðfrítt stál og damascus munstur

Söluverð37,800 kr

Átta hnífar fyrir fjölbreytt verkefni í eldhúsinu, frá því að flysja og skera grænmeti yfir í að flaka fisk og sneiða brauð eða kjöt. Hnífarnir eru úr ryðfríu stáli með damascus-munstri.

Í settinu eru átta hnífar með eftirfarandi blaðlengdum:

  • Santoku-hnífur, 18 cm, fyrir grænmeti, kjöt og fisk.
  • Lítill afhýðingarhnífur, 10 cm, fyrir flysjun og nákvæmnisvinnu.
  • Kokkahnífur, 12 cm, fyrir smærri skurðarverkefni.
  • Flökunarhnífur, 15,5 cm, fyrir flökun á fiski.
  • Kjötskurðarhnífur, 20 cm, fyrir að sneiða kjöt.
  • Kokkahnífur, 20,5 cm, fyrir daglegan undirbúning hráefnis.
  • Brauðhnífur, 20 cm, fyrir að sneiða brauð.
  • Nakiri-hnífur, 18 cm, fyrir að skera og saxa grænmeti.

Umhirða: Hnífarnir mega ekki fara í uppþvottavél. Þvoið þá í höndunum og þurrkið vel strax eftir þvott. Ryðfrítt stál getur fengið bletti ef salt- eða sýruleifar sitja lengi á yfirborðinu eða ef hnífarnir haldast blautir.


apple pay american express maestro master visa diners club jcb NetBanking

Frí sending með Dropp

Ef verslað er fyrir 20.000 kr eða meira

Frábær þjónusta

Hafðu samband grilldrottningin@grilldrottningin.is

Öruggar greiðslur

Kreditkort, Netgíró, Apple pay, Google wallet