STEAK CHAMP Damascus Kokkahnífur "Wagyu", 20cm/8” með leður hulstri

Söluverð29.890 kr

67 LÖG AF STÁLI 

Hvort sem þú ert að skera kjöt, fisk eða grænmeti – „Wagyu“ hnífurinn er hinn fullkomni fjölnota hnífur fyrir matreiðslumeistara. Hann er innblásinn af japanska „Kiritsuke“ hnífnum og býður upp á fullkomna nákvæmni fyrir hvers kyns skurð. Oddhvasst blaðið er tilvalið til að fjarlægja húð og sinar að undirbúa sashimi og sushi hefur aldrei verið einfaldara. Þökk sé einstökum eiginleikum hnífsins verða allir skurðir auðveldir og hið rennislétta, þægilega og örugga haldfang tryggir að þú hafir alltaf fulla stjórn, jafnvel með blautar eða rakar hendur. Hvort sem það er í eldhúsinu eða við grillið „Wagyu“ verður nýi uppáhalds hnífurinn þinn.

Hágæðaefni: VG-10 Damascus stál

Þessi hnífur sameinar notagildi og list. Blaðið samanstendur af hörðum VG-10 stál-kjarna sem er umvafinn 66 lögum af Damaskus-stáli. Þessi samsetning tryggir ekki aðeins ótrúlega skerpu, heldur einnig mikla og langvarandi eggheldni – fullkomið fyrir nákvæma skurði sem renna áreynslulaust í gegnum kjöt, fisk og grænmeti.

Japönsk matargerðar- og hnífalist: innblásið af „Kiritsuke“

Hönnun þessa hnífs byggir á hinum hefðbundna japanska „Kiritsuke“ hníf við höfum skapað fjölnota kokkahníf sem hentar jafnt áhugafólki sem og fagfólki. Hvort sem þú ert að flaka fisk, sneiða kjöt eða skera grænmeti: með þessu blaði hefurðu alltaf rétta verkfærið í hendi.

Beittur í gegn: nákvæmni fyrir fínustu skurði

Að skera tómata í næfurþunnar sneiðar, Enginn vandi. Rakhnífsbeitt blaðið tryggir mjúka, hreina skurði sem lyfta matreiðsluupplifuninni á nýtt stig hvort sem það er í eldhúsinu eða við grillið. Reyndir hnífa brýnarar gefa hverjum hníf tvíhliða V-skerpu með handafli. Þú getur svo viðhaldið upprunalegri skerpu sjálfur með venjulegu hnífabrýni.

Framúrskarandi haldfang: stamt og umhverfisvænt

Öryggi og þægindi eru tryggð með „Wagyu“ hnífnum. Ergónómískt mótað og stamt handfang úr gripvænu efni gefur þér fulla stjórn og stöðugleika, jafnvel með blauta hendur. Grunnur handfangsins er úr hörðu plasti, þar sem 50% efnisins kemur úr endurunnu hráefni.

Glæsileg aukahlutir: leðurslíður og gjafaumbúðir

Til að vernda nýja uppáhaldshnífinn þinn fylgir með honum sérsniðið slíður úr hágæða ekta leðri. Það heldur honum öruggum á ferðinni og tilbúnum til notkunar hvenær sem er. „Wagyu“ hnífurinn kemur í stílhreinni gjafaöskju í möttum svörtum lit – fullkomið sem gjöf fyrir matreiðslu unnendur og grillmeistara.

apple pay american express maestro master visa diners club jcb NetBanking

Frí sending með Dropp

Ef verslað er fyrir 15.000 kr eða meira

Frábær þjónusta

Hafðu samband grilldrottningin@grilldrottningin.is

Öruggar greiðslur

Kreditkort, Netgíró, Apple pay, Google wallet