Stillanlegt form
Eitt form sem hægt er að breyta í mismunandi stærðir
Þetta form er hægt að setja saman á marga mismunandi vegu ong nota til að baka brauð og kökur. Þú enfaldlega setur það saman miðað við stærðina sem þú villt hafa á brauðunum, bollunum eða kökunum. Formið er dönsk hönnun og framleitt þar.
Stærðin á þessu formi er S (34,5cm x 33cm). Einnig er hægt að sérpanta aðrar stærðir.
Formið er hægt að setja saman í td:
14 stk. pylsubrauð 4,5 x 16,5 cm.
21 stk. mini snittubrauð 4,5 x 11 cm.
8 stk. samlokubrauð 9 x 11cm.
7 stk. Snittubrauð 22 x 4,5 cm.
42 stk. Brownies eða 42 stk. bollur 4,5 x 5,5 cm
Mótið er úr matvælahæfu ryðfríu stáli og allir 17 hlutarnir þola að fara í uppþvottavél.
Til að koma í veg fyrir að festist í forminu þarf að smyrja formið(hlutana) vel áður en deigið er sett í.