Pretzel
230 ml volgt vatn
12 gr þurrger
500 gr hveiti
22 gr súrduft(hvede-sur)
11 gr Bageenzymer
1 tsk sykur
2 tsk salt
60 gr mjúkt smjör
Aðferð:
Gerið sett út í volgt vatnið og hrært saman, látið bíða í 10 mín
Þurrfefnin sett út í
Hrært saman og síðan mjúku smjörinu bætt við
Hnoða í sirka 10 - 15 mín þangað til deigið er mjúkt
Láta svo deigið hvíla í 30 mín
Skipta deginu í 12 jafna parta
Rúlla hverjum parti upp, ekki setja hveiti á borðið.
Hver lengja má ekki vera styttri en 50 cm
Búa til slaufur og setja á bökunarplötu. Það kom mikið betur út að nota bökunarplötu með holum. Pretzel-in urðu með skemmtilegri áferð og bragð betri. Geyma í ískáp í sirka klukkutíma. Ekki breiða yfir.
Þau sem eru hægramegin á myndini voru bökuð á gataplötu en þau sem eru vinstramegin voru bökuð á venjulegri plötu með bökunarpappír.
Setja vatn í pott 8 bolla og láta suðuna koma upp. Hella síðan 1/2 bolla af matarsóda út í vatnið.
Baðið pretzel í vatninu, ekki hafa það lengur en 10 sekúndur ofan í.
Skera aðeins í þær og strá salti yfir
Baka við 200 gráður í 15 - 20. mínútur
Skrá athugasemd
This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.